← Allar fréttir
#sorp Okkar Breiðholt

Þjónustukerðing Sorpu við Jafnasel

Sorpa hefur skert þjónustu við íbúa Breiðholts. Endurvinnslustöðin við Jafnasel er nú skilgreind sem „lítil endurvinnslustöð“ fyrir almennan heimilisúrgang.

AI mynd af (bíllausum) íbúum Breiðholts bíða eftir að geta hent heimilissorpi í Jafnaseli.
AI mynd af (bíllausum) íbúum Breiðholts bíða eftir að geta hent heimilissorpi í Jafnaseli. Mynd: AI

SORPA hefur dregið verulega úr þjónustu á endurvinnslustöðinni í Jafnaseli. Frá 31. mars er þar tekið á móti um 30 úrgangsflokkum í stað 40, en stöðin tekur ekki lengur við ýmsum stærri og rúmfrekari hlutum, svo sem timbri, húsgögnum, dýnum, flísum, gleri, hreinlætistækjum og málmhlutum. Sama breyting tók gildi á stöð SORPU við Dalveg í Kópavogi.

Íbúar sem áður gátu losað sig við slíkan úrgang í Jafnaseli þurfa nú að fara með hann á stærri stöðvar SORPU, meðal annars á Sævarhöfða, í Ánanaust, Breiðhellu eða Blíðubakka. SORPA segir breytinguna nauðsynlega þar sem stöðvarnar í Jafnaseli og á Dalvegi hafi verið byggðar árið 1991 fyrir mun einfaldari móttöku, en hafi með tímanum tekið við allt að 40 flokkum og verið farnar að ráða illa við álagið.

Fyrirtækið segir markmiðið að einfalda móttöku, bæta flæði og stytta biðtíma fyrir þá sem koma með almennan heimilisúrgang. Gagnrýnendur líta þó á breytinguna sem beina þjónustuskerðingu, einkum fyrir íbúa í Breiðholti og nágrannahverfum, sem nú þurfa að aka lengra með hluta af úrgangi sínum. Í skoðanagrein á Vísi var því lýst að álagið virtist einfaldlega færast yfir á stærri stöðvar, þar sem myndast gætu lengri biðraðir.

Breytingin markar því skýr tímamót: Jafnasel er ekki lengur fullbúin hverfisstöð fyrir stærra heimilisrusl, heldur minni móttökustöð með þrengra hlutverk.